Upplýsingaöryggisstefna | Stika solutions

Upplýsingaöryggisstefna

Stefnan styður við samfelldan rekstur og örugga þjónustu, lágmarkar rekstraráhættu og hámarkar öryggi þeirra upplýsinga og verðmæta sem eru í eigu og umsjón Stiku.

Tilgangur

Upplýsingaöryggisstefna Stiku solutions styður við samfelldan rekstur og þjónustu og lágmarkar þannig rekstraráhættu og hámarkar öryggi verðmæta í eigu og umsjón fyrirtækisins.

Umfang

Upplýsingaöryggisstefnan er bindandi fyrir allt starfsfólk og nær til allra lögaðila sem veita fyrirtækinu þjónustu. Stefnan nær einnig til reksturs og aðstöðu ásamt allra kerfa, hug- og vélbúnaðar sem er í eigu Stiku, sem nánar er tilgreint í staðhæfi um vottun.

Markmið

  • Sjá til þess að þjónusta sé ávallt aðgengileg fyrir viðskiptavini.
  • Tryggja öryggi upplýsinga og verðmæta í eigu og umsjón fyrirtækisins.
  • Búa starfsfólki og viðskiptavinum öruggt umhverfi og stuðla að aukinni vitund um upplýsingaöryggi.
  • Tryggja hlítingu við lög og reglur er varða meðhöndlun upplýsinga og samninga sem fyrirtækið hefur gert.

Framkvæmd og ábyrgð

Framkvæmdastjóri sér til þess að upplýsingaöryggisstefnunni sé framfylgt með því að setja markmið og reglur og tryggja viðeigandi ráðstafanir til að framfylgja þeim. Stefnan felur í sér skuldbindingu um stöðugar umbætur á stjórnun upplýsingaöryggis. Framkvæmdastjóri getur falið stjórnendum eftirfylgni með tilteknum ákvörðunum og verklagsreglum.

Stefnan felur í sér skuldbindingu um stöðugar umbætur, reglulegt mat á áhættu og markviss viðbrögð við öryggisatvikum til að tryggja öruggan og traustan rekstur.

Allt starfsfólk og þjónustuaðilar eru skuldbundin til að vernda upplýsingar og kerfi gegn óheimilum aðgangi, notkun, breytingum, uppljóstrun, eyðileggingu, glötun eða flutningi. Aðilar sem brjóta gegn upplýsingaöryggisstefnunni eiga yfir höfði sér áminningu í starfi, uppsögn eða að beitt verði viðeigandi lagalegum ráðstöfunum allt eftir eðli og umfangi brots.

Endurskoðun

Endurskoða skal upplýsingaöryggisstefnu þessa á minnst þriggja ára fresti eða ef breytingar verða á skipulagi eða starfsemi Stiku. Stefnuna skal kynna fyrir stjórn og samþykkt af framkvæmdastjóra.

Reykjavík, 23.02.2026

Magnús Júlíusson
Framkvæmdastjóri