Um Stiku

Persónuverndarstefna Stiku umhverfislausna

Stika Solutions hefur það að markmiði að tryggja áreiðanleika og öryggi allra persónuupplýsinga sem unnið er með í Stiku ESG. Stika Solutions hefur sett sér svohljóðandi persónuverndarstefnu, í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónupplýsinga (persónuverndarlög).

Með þessari stefnu leggur Stika Solutions mikla áherslu á að öll vinnsla persónuupplýsinga fari fram í samræmi við ákvæði persónuverndarlaga. Stefnan gildir um sérhverja vinnslu persónupplýsinga sem starfsmenn Stiku umhverfislausna framkvæma, svo og þá vinnu sem þriðji aðili framkvæmir fyrir hönd Stiku umhverfislausna.

Meðferð persónuupplýsinga

Með þessari stefnu leggur Stika Solutions áherslu á að öll vinnsla persónuupplýsinga fari fram í samræmi við ákvæði persónuverndarlaga.

Í þessari stefnu, sem gildir fyrir alla viðskiptavini Stiku umhverfislausna og samstarfsaðila, viljum við upplýsa þig um hvernig við meðhöndlum persónupplýsingar þínar.

Stika Solutions vinnur stöðugt að persónuverndarmálum og á þessari síðu finnur þú ávallt nýjustu útgáfuna. Þessi stefna var síðast uppfærð í maí 2023.

Vinnsla persónuupplýsinga

Til persónuupplýsinga teljast hvers kyns upplýsingar sem nota má til að persónugreina aðila sem nota kerfi Stiku umhverfislausna. Við vinnslu upplýsinga sem gerðar hafa verið ópersónugreinanlegar, skal tryggt að ekki sé hægt að rekja þær til einstaklinga.

Til vinnslu persónupplýsinga telst öll notkun og meðferð persónupplýsinga, söfnun, varðveisla, skráning og eyðing gagna.

Söfnun persónupplýsinga

Stika Solutions er með kerfi þar sem notendur þurfa að skrá sig inn með auðkenningu, við söfnum því meðal annars upplýsingum um:

  • Innskráningu og staðsetningu notanda (IP-tölu).
  • Kennitölu, nafn, símanúmer og netfang.
  • Aðgerðir sem framkvæmdar eru af notanda.

Stika Solutions notar vefkökur til að aðgreina þig frá öðrum notendum. Vefkökur eru litlar textaskrár sem vafrinn þinn vistar á tölvunni. Vefkökur gera okkur kleift að muna ákveðnar stillingar hjá notanda til að bæta notendaupplifun.

Miðlun persónuupplýsinga

Stika Solutions er heimilt að miðla persónupplýsingum til þriðja aðila. Þetta eru aðilar sem eru með þjónustusamninga sem og vinnslusamninga við Stiku umhverfislausnir. Þessir aðilar vinna í lausnum Stiku umhverfislausna, bæði í þróun og þjónustu.

Varðveisla persónuupplýsinga

Stika Solutions mun varðveita persónupplýsingar eins lengi og þurfa þykir sem lýst er í þessari persónuverndarstefnu nema lög krefjist eða leyfi lengri varðveislutíma.

Nákvæmi og áreiðanleiki persónuupplýsinga

Stika Solutions gerir viðeigandi ráðstafanir til að tryggja áreiðanleika og nákvæmni gagna og upplýsinga sem unnið er úr þeim. Þessum ráðstöfunum er ætlað að vernda persónupplýsingar gegn því að þær tapist eða breytist. Ef persónuupplýsingar eru óáreiðanlegar eða rangar mun Stika umhverfislausnir leitast við að leiðrétta þær innan þeirra marka sem lög heimila.

Öryggi persónuupplýsinga

Stika Solutions gætir öryggis persónuupplýsinga með því að takmarka aðgang að slíkum upplýsingum til starfsmanna og þriðja aðila. Stika Solutions notar tæknilegar ráðstafanir til að koma í veg fyrir misnotkun á upplýsingum. Stika Solutions vinnur einnig eftir skipulögðum verkferlum og innri rýni til að tryggja öryggi persónuupplýsinga.

Réttindi einstaklinga

Einstaklingar hafa þann rétt að fá upplýsingar um hvort verið sé að vinna með þeirra persónuupplýsingar, söfnun, notkun og varðveislu. Einstaklingum er heimilt að andmæla vinnslu persónuupplýsinga. Einnig hafa einstaklingar rétt á að óska eftir því að rangar, villandi eða ófullkomnar persónuupplýsingar um sig sæti leiðréttingu, lokað verði fyrir notkun þeirra eða þeim eytt. Beiðnir verða afgreiddar eins fljótt og hægt er.

Kvartanir, beiðnir og ábendingar

Fyrirspurnum vegna vinnslu persónuupplýsinga þarf að berast Stiku umhverfislausna í gegnum tölvupóst á stika@stikasolutions.is. Stika Solutions mun bregðast við eins fljótt og hægt er.