Betri yfirsýn.
Betri ákvarðanir.
Stika þróar lausnir fyrir áhættustjórnun, stjórnarhætti, fylgni og sjálfbærni. StikaERM tengir saman áhættur, stýringar, kröfur, hagaðila og birgja í einu stjórnunarkerfi.
ERM Áhættustýringarkerfi
StikaERM gefur stjórnendum og starfsfólki sameiginlega yfirsýn yfir áhættur, stýringar, kröfur og eftirfylgni. Kerfið styður bæði almenna áhættustjórnun og kröfur sem tengjast meðal annars ISO-stöðlum, NIS2 og DORA.
- Áhættuskrá með ómeðhöndlaðri og eftirstandandi áhættu
- Slaufugreining og tenging áhættu við stýringar
- Kröfuskrá, birgjamat og hagaðilagreining
- Eigendur, sannanir, frestir og sjálfvirkar áminningar
- Lykiláhættur og skýr yfirsýn fyrir stjórn og stjórnendur
ESG bókhaldskerfi
UFS bókhaldskerfið auðveldar fyrirtækjum yfirsýn yfir mælikvarða sem tengjast frammistöðu í sjálfbærni og samfélagsábyrgð. Kerfið styður fjölbreytta gagnastrauma og gerir upplýsingar aðgengilegar fyrir markvissa eftirfylgni og skýrslugjöf.
- Unnið með alla virðiskeðjuna
- Fjölbreyttir gagnastraumar
- Áhersla á alla þætti UFS
- Mælaborð með lykilmælikvörðum
- Skýrslur sem taka mið af ESRS
